1 min read
Slepptu takinu af streitunni
Hugleiðsla getur haft undraverð áhrif á líkamlega heilsu þína og andlega líðan. Þegar orðið hugleiðsla kemur upp sjá margir fyrir sér að maður þurfi að sitja kyrr með krosslagða fætur í langan tíma til að finna innri ró. En það er hægt að stunda hugleiðslu á marga vegu, meðal annars á göngu.
Gönguhugleiðsla getur verið frábær og einföld leið til að bæta hugleiðslu inn í daglegt líf. Hún virkar svona:
Áður en þú leggur af stað í gönguna skaltu ákveða að þú ætlir að sleppa taki af öllum verkefnum dagins og áhyggjum. Slepptu taki af allri streitu í líkamanum.
Ákveddu hvaða leið þú ætlar að fara. Það er áhrifaríkara að gera gönguhugleiðslu úti í náttúrunni en ekki nauðsynlegt. Gakktu síðan af stað. Haltu jöfnum, þægilegum hraða og andaðu jafnt inn og út. Mundu að þetta er ekki kraftganga.
Á meðan þú gengur skaltu beina athyglinni að sjálfri göngunni. Taktu eftir því þegar fóturinn snertir jörðina, hvernig þunginn færist frá einum fótlegg yfir á hinni og þannig koll af kolli. Taktu síðan eftir önduninni á meðan þú gengur. Fylgstu með andadrættinum fara inn og út. Vertu algjörlega meðvituð um það að þú sért að ganga. Haltu þessu hugarástandi á meðan þú gengur - helst allan tímann.
Þegar hugsanirnar vilja taka yfir skaltu sjá fyrir þér að þú sendir þér svífandi í burtu og beinir athyglinni aftur að göngunni þinni. Prófaðu að ganga svona í 15-20 mínútur og taktu eftir því hvernig þér líður þegar þú kemur aftur heim.