3 min read

Mér finnst mikilvægt að sýna sjálfum sér væntumþykju og það gerir maður meðal annars með því að hlúa að andlegri og líkamlegri heilsu og vera skuldbundinn ákvörðunum sínum. 

Með árunum hef ég komið mér upp heilsurútínu. Ég hef prófað mig áfram og komist þannig að því hvað hentar mér og hvað mig langar til að gera fyrir sjálfa mig. Venjur mínar eru langt því frá að vera fullkomnar og ég sýni mér mildi og ríf mig ekki niður undir neinum Þar sem ég er með liðagigt hef ég líka lært að sumt hentar líkama mínum ekki og ég því orðin góð í að taka tillit til þess. Ég hleyp t.d ekki en elska göngutúra. 

En það sem ég geri nánast alla daga ársins er að byrja daginn á stóru vatnsglasi með örlitlu af sítrónusafa. Ég passa upp á vatnið mitt og drekk alltaf 2 lítra á dag. Á morgnana sest ég niður með kaffibollann minn og skrifa í dagbók. Ég skrifa Plan dagsins (Planið er ein af Grunnreglunum 4) og ákveð hvað ég ætla að borða þann daginn og losa heilann minn þar með við að þurfa að hugsa einar 50-60 matartengdar hugsanir yfir daginn. Ég skrifa líka niður markmiðin mín og legg þar með ákveðinn leiðarvísi fyrir hugann svo hann viti hvert við stefnum. 

Að skrifa Planið og markmið mín tekur mig ekki meira en 5-10 mínútur. Þeim tíma er vel varið.Síðan fæ ég mér græna Lindudrykkinn nokkrum sinnum í viku en hann er stútfullur af grænmeti. Ég fer út að ganga með hundana mína flesta daga ársins og okkur finnst dásamlegt að fara niður í fjöru. Mér finnst eitthvað mjög heilandi við það að anda að mér sjávarilminum í Álftanesfjöru. 

Ég hugleiði alla daga, stundum á morgnana en oftast á kvöldin áður en ég fer að sofa. Svefninn hefur ekki verið upp á sitt besta síðustu mánuði. Breytingarskeiðið hefur neikvæðáhrif á svefninn minn og kvöldhugleiðsla hefur hjálpað mér mikið. 

Nú svo má ekki gleyma „töfratækinu“ mínu sem er sauna. Ég hef verið mikil talskona saunabaða um langa hríð en ég byrjaði að fara að staðaldri í sauna í Baðhúsinu. Ég er svo heppin að hafa saunaklefa heima hjá mér. Ég fer í sauna nokkrum sinnum í viku og alltaf um helgar. Ég þurrbursta líkamann en það hefur góð hreinsandi áhrif á skrokkinn.Einnig hugleiði ég í sauna og á það til að fara líka með bænirnar mínar þar. Hitinn hefur mjög góð áhrif á liðagigtina mína og almennt séð virkilega góð áhrif á heilsuna. 

Ég er ekki sú eina á heimilinu sem fer í sauna, þvíhundurinn minn hún Stjarna sem er að verða fjórtán ára hefur farið með mér í sauna allt hennar líf! Hún vill þetta sjálf, liggur á gólfinu þar sem hitinn er minni og slakar á og hrýtur. Stundum eftir göngutúra niður í fjöru, þegar hún fer í sjósund, finnst henni voða gott að koma heim í sauna. Þannig að hún stundar köld og heit böð! Ég held reyndar að hún sé ein af afar fáum hundum í heiminum sem fer í sauna. 

Þetta eru mínar helstu heilsuvenjur, eitthvað sem ég geri flesta daga ársins og ég þarf ekki að hvetja mig eða tala mig inn á að gera þetta því ég hef gert þetta svo lengi að venjurnar eru orðnar hluti af þeirri konu sem ég er.

 

Flesta daga ársins fæ ég mér einn heilsudrykk (saðsaman þeyting) úr 28 daga Heilsuáskorun. Þeir eru allir stútfullir af ofurfæðu og saðasamir. Smelltu hér til að skoða nánar.