1 min read

Það jafnast að sjálfsögðu ekkert á við íslenska laxinn, í dag er sunnudagur og á sunnudögum geri ég mér gjarnan dagamun og elda lax á mismunandi hátt. Lax er ein af fáum matvörum sem veitir okkur D vítamín og ég  veit að hvergi hægt að fá betri óunnar omega 3 fitursýrur en úr laxinum. Hér er  er ein af mörgum uppáhalds uppskriftunum mínum. Og ef ég á afgang þá nota ég hann alltaf í eggjahræru næsta dag.
 
Lax, salt og pipar
grillaðu eða bakaðu laxinn í ofni.
 
Ferskjusalsa
2 ferskar ferskjur 
1/2 rauðlaukur
safi úr einni límónu
1 msk. ólífuolía 
1 tsk. eplaedik
1 tsk. hunang 
1 tsk. kúmen malað
chiliflögur eftir smekk
eitt búnt kóríander.
 
Settu allt saman í blandarann og notaði pulse takkann nokkrum sinnum, 
 
Ferskt spínat 
Agúrka
Avókadó 
 
Skerðu grænmetið niður, legðu laxinn yfir og settu svo ferskjusalsa vel yfir laxinn.

 

Smella hér til að skrá mig í ókeypis áskrift af magasíninu Lífið með Lindu Pé. 

Smella hér til að skrá mig í prógrammið Lífið með Lindu Pé.