Linda Pétursdóttir
Athafnakona · Mentor · Fyrirlesari
– persónulega, faglega og fjárhagslega.
Fáðu strax aðgang að ókeypis örnámskeiði LMLP
og boð á gestalistann.

Leiðir til að vinna með mér
Sjálfsræktarprógramm
Fyrir íslenskumælandi konur
Breyttu sjálfsmynd þinni – breyttu lífi þínu.
Kynntu þér prógrammiðLMLP – Lífið með Lindu Pé
Nám í lífsþjálfun
Opið öllum kynjum
Fyrir þá sem vilja mennta sig sem lífsþjálfar. Byggðu upp feril sem breytir lífum og skapar varanlegt frelsi.
Kynntu þér skólannMastermind
Opið öllum kynjum
Fyrir fyrirtækjaeigendur sem vilja fara upp í næstu milljón í rekstrinum.
Kynntu þér mastermindið
Um Lindu
Ég er athafnakona, master lífsþjálfi og viðskiptamentor með B.A. í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Frá árinu 1994 hef ég unnið með íslenskumælandi konum og stutt þær í að efla líf sitt.
Ég stofnaði Baðhúsið og rak það í tuttugu ár. Ég var stofnfélagi FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, sat í fyrstu stjórn félagsins og var síðar formaður þess. Í dag er ég stofnandi og framkvæmdastjóri LMLP prógrammsins, Lífsþjálfaskólans og Milljónaklúbbsins.
Ungfrú heimur 1988 · Stofnandi Baðhússins · Fyrrum formaður FKA · Gestafyrirlesari við Háskóla Íslands
Lestu meira um migRáðstefnan
Framúrskarandi konan er haldin fimmta árið í röð og árið 2027 fer hún fram á Íslandi. Áður hefur ráðstefnan meðal annars verið á Tenerife, í Cannes og í Madrid.
Ráðstefnan á Íslandi er opin öllum konum.
Tryggðu þér miða




Meðmæli
Strjúktu til hliðar til að sjá fleiri meðmæli →
Ráðstefnan fór fram úr mínum björtustu vonum og var hreinlega umbreytandi upplifun. Ég kom heim sem breytt kona, full af nýrri orku og með skýrari sýn á sjálfa mig og framtíðina.
Framúrskarandi konan er mín leið til að stíga áfram og lengra í áttina að konunni sem ég vil vera. Tenging og orka sem lætur mann kafa dýpra og uppgötva tól til þess að ná lengra og verða framúrskarandi.
Framúrskarandi ráðstefnan í Madrid var lúxus í alla staði. Linda stjórnaði henni með hlýju og einlægni eins og henni er einni lagið. Enn stórkostlegra var að fá tækifæri til að njóta ráðstefnunnar með dóttur minni.
Framúrskarandi konan í Madrid var einstök upplifun frá upphafi til enda. „Glærulausa Linda“ náði að skapa einstaka nálægð og flæði þar sem viska, húmor og einlægni runnu saman á fallegan hátt.
Það var svo nærandi og dásamlega gott að fara til Madrid, en þetta er þriðja ráðstefnan sem ég sæki. Ég er alltaf að læra meira um sjálfa mig sem kemur mér ávallt á óvart.
Líðanin er framúrskarandi.
Það var yndislegt að taka þátt í ráðstefnunni, bæði fræðilegt og fallegt. Einnig var gaman að heilsa upp á konur frá fyrri árum og kynnast nýjum.
Meðmæli
LMLP prógrammið
„Ég get með sanni sagt að LMLP og lífsþjálfun hafi gerbreytt lífi mínu og þá sérstaklega hvernig ég nálgast það og sérstaklega sjálfa mig. … Ekki ofhugsa þetta og flækja þetta fyrir þér. Skráðu þig. Gefðu sjálfri þér þetta tækifæri – þú ert fær um svo miklu meira en þig óraði fyrir.“
Ragna Valdís Elísdóttir
Strjúktu til hliðar til að sjá fleiri meðmæli →
Þetta breytti mínu lífi. Ég lærði að standa betur með sjálfri mér. … Leiðtogi í eigin lífi. Ég er mín eigin hamingja. … Það er allt að vinna og engu að tapa.
Guðrún Hanna SchevingLMLP prógrammiðÉg er akkúrat búin að vera í prógramminu hennar Lindu í 4 ár … þetta er það besta sem ég hef gert fyrir mig. … Í dag elska ég þá konu sem ég er og því lífi sem hún lifir.
Sigríður SigmundsdóttirLMLP og LífsþjálfaskólinnÉg ákvað að skrá mig í LMLP í miðri krabbameinsmeðferð til að styrkja mig á erfiðum tíma. … Með hjálp Lindu styrkti ég mig mikið andlega og líkamlega og fór aftur í fullt starf. … Líf mitt er svo miklu skemmtilegra og fullt af nýjum hugmyndum.
Hjördís Björk ÓlafsdóttirLMLP prógrammiðÉg setti mér það markmið að léttast um 10 kíló en þau eru orðin 16 þannig að þetta hefur farið fram úr mínum björtustu vonum. … Líf mitt hefur einfaldlega allt breyst til hins betra.
Edda GuðsteinsdóttirLMLP prógrammiðÞað sem ég hef lært í LMLP prógramminu er að ná taki á hugsunum mínum – þar liggur munurinn. … Ég hef einnig lagað mikið til í fyrirtækinu og er orðin betri stjórnandi.
Elín KáradóttirLMLP prógrammiðÞað sem áður hafði vafist fyrir mér svo árum skipti er horfið og ég þarf ekki lengur að ræða eða hugsa um það. … Í stuttu máli sagt er lífið allt einfaldara og skýrara.
Áshildur JónsdóttirLMLP prógrammiðMér fannst ég of ung til að setjast í helgan stein og vantaði meiri tilgang. Setningin sem Linda sagði, „Þú ert aldrei of gömul til að eiga besta hluta ævi þinnar“, vakti mig af þessu tilgangsleysi.
Sólrún Ósk GestsdóttirLMLP prógrammiðEftir að ég skráði mig í LMLP, sá ég að það er hægt að breyta hugsunarhættinum í betri og jákvæðari hugsun. … Ég sit betur í sjálfri mér, er rólegri og yfirvegaðri.
Þórný JóhannsdóttirLMLP prógrammiðMér leið illa og var ekki með neitt sjálfstraust, var bara búin að týna sjálfri mér. Mér líður mun betur í dag og vinn þetta á mínum hraða og held ótrauð áfram.
Alda Rós JensenLMLP prógrammiðÞegar ég kom inn í LMLP vissi ég ekki hversu mikið þetta samfélag ætti eftir að gefa mér. Fyrir mig hefur þetta verið stór hluti af því að byggja mig upp að nýju. Ekki til að verða aftur konan sem ég var, heldur til að kynnast konunni sem ég er að verða.
Halldóra JónsdóttirLMLP prógrammiðHér í LMLP hef ég fengið ómetanleg verkfæri, bæði á fundum og í lífsþjálfun. Ég hef lært að standa með sjálfri mér, hætta sjálfsniðurrifi og setja mig í fyrsta sæti. Held að þeir sem þekkja til mín sjái vel breytinguna á mér.
Sigrún B. SæmundsdóttirLMLP prógrammiðÞað sem er svo gott fyrir mig, sem vinn vaktavinnu og bý í öðru landi, er að geta verið með hvenær sem er. LMLP hefur gert mikið fyrir mig, styrkt mig og hjálpað. Skráðu þig og þú sérð ekki eftir því, allt að vinna og engu að tapa.
Agnes ÁsgeirsdóttirLMLP prógrammiðAð fara í LMLP er sú besta ákvörðun sem ég hef tekið. Ég hef lært svo mikið um sjálfa mig og á hverjum degi nýti ég mér það sem ég hef lært. Ég hugsa orðið öðruvísi og tekst á við hlutina á annan hátt.
Anna Steinunn JónsdóttirLMLP prógrammiðMér finnst mikilvægt að eiga LMLP-samfélagið að. Það hjálpar mér að muna hver ég er og fyrir hvað ég stend.
Ég mæli 100% með að vera í LMLP.
Birgitta HalldórsdóttirLMLP prógrammiðÉg stækka sjálfa mig á mínum forsendum í átt að þeirri konu og velgengni sem mig dreymir um. Að vera í LMLP hefur hvatt mig til að tileinka mér góðar venjur sem koma mér lengra í lífinu.
Helga ÁgústsdóttirLMLP prógrammiðÉg mæli eindregið með LMLP. Ég er miklu jákvæðari og það er eins og hafi kviknað ljós allt í einu hjá mér, og ég er miklu öruggari með sjálfa mig.
Stella BragadóttirLMLP prógrammiðLMLP prógrammið finnst mér mannbætandi því þar fáum við verkfæri og tækifæri til að efla okkur sjálfar á svo margan hátt og láta ljós okkar skína.
Anna Birna SæmundsdóttirLMLP prógrammiðLífið í LMLP er það besta sem gat komið fyrir mig þegar ég hætti að vinna 67 ára. Hér eru flottar konur frá 18 ára til 80 ára sem allar vinna að því sama: við ætlum að verða besta útgáfan af okkur sjálfum.
Kristín SveinsdóttirLMLP prógrammiðLMLP hefur breytt öllu. Ég hef miklu meira sjálfstraust og trú á sjálfa mig. Ég get það sem ég ætla mér. Konur, ekki spurning, grípið tækifærið og skráið ykkur.
Ólöf Ásta ÞorsteinsdóttirLMLP prógrammiðMeðmæli
Lífsþjálfaskólinn
„Snilldarnám sem fór langt fram úr mínum væntingum.
Nám sem allir ráða við og hverrar krónu virði.“Ester Hjartardóttir
Strjúktu til hliðar til að sjá fleiri meðmæli →
Námið í Lífsþjálfaskólanum fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég fór frá því að vera með stöðugan sjálfsefa og með mikinn innri óróa yfir í sjálfsörugga konu sem upplifir innri frið. … Ég er lifandi dæmi þess að fræðin virka.
Jóhanna Sól HaraldsdóttirLífsþjálfaskólinnNám í Lífsþjálfaskólanum mun opna svo margar dyr í lífi þínu að það mun vera erfitt að velja hverjar þú átt að fara í gegnum. … Það er eitthvað sem verður aldrei frá þér tekið.
Margrét SigmundsdóttirLífsþjálfaskólinnNámið hefur styrkt mig bæði persónulega og sem nýútskrifaður lífsþjálfi. … Ég mæli innilega með þessu námi fyrir alla sem vilja vaxa og starfa sem lífsþjálfar.
Lilja Björg KjartansdóttirLífsþjálfaskólinnÉg er búin að henda handbókinni um annað fólk. … Ég er orðin leiðtogi í eigin lífi og ég er orðin besta útgáfan af sjálfri mér.
Kristín SteingrímsdóttirLífsþjálfaskólinnÞetta er nám sem nýtist á öllum sviðum lífsins, persónulega, starfslega, fjárhagslega, félagslega og í uppeldi og samskiptum við nánustu fjölskyldu.
Ásta Hrönn HarðardóttirLífsþjálfaskólinnÞú upplifir miklar breytingar á þínu lífi að námi loknu og öðlast trú og staðfestu og ég vil fara svo langt að segja: þú verður betri í lífinu.
Anna JónsdóttirLífsþjálfaskólinnÉg mæli hiklaust með náminu í Lífsþjálfaskólanum. Námið er ein mín besta fjárfesting í sjálfri mér og hefur hjálpað mér að stækka sem persóna og gefið mér kraft til að stefna hátt og láta drauma mína rætast.
Berglind Eldey AlbertsdóttirLífsþjálfaskólinnÞetta nám getur verið lífsbreytir – ef við leyfum því að vera það. Þau verkfæri sem er boðið upp á að læra á eru með þeim bestu sem hægt er að sækja sér í verkfærakistu lífsins.
Sólveig BirgisdóttirLífsþjálfaskólinnÉg mæli eindregið með náminu í Lífsþjálfaskólanum því að tengjast eigin hugsunum og sjá hvernig þær orsaka ákveðna líðan sem svo framkallar einhverja hegðun er algjörlega magnað, svo ég tali ekki um að geta hjálpað öðrum til hins sama.
Regína SigurgeirsdóttirLífsþjálfaskólinnÞetta er það mest mannbætandi nám sem ég hef farið í og sennilega það besta sem ég hef gert fyrir sjálfa mig. Linda er frábær kennari, kemur hlutunum vel frá sér og lítur á alla sem jafningja. Það er alltaf sól í hjarta eftir tíma hjá henni.
Hulda Björk ÞrastardóttirLífsþjálfaskólinnLinda er frábær kennari. Allt námsefni og utanumhald upp á 10, svo fallega fram sett og skýrt. Og svo kynnist maður svo flottum konum í leiðinni.
Kristín ÁgústsdóttirLífsþjálfaskólinnÉg mæli hiklaust með Lífsþjálfaskólanum. Þetta nám er lykilinn að öllu sem þú þarft.
Helga HreinsdóttirLífsþjálfaskólinnHlustaðu
Hátt í 300 þættir sem þú getur hlustað á
hvar og hvenær sem er.
Viðtöl við Lindu hafa meðal annars birst hjá
…og hjá hundruðum annarra fjölmiðla, til dæmis í Kóreu, Taívan, Japan, Indlandi, Rússlandi, Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Ítalíu, El Salvador, Ekvador, Englandi, Bandaríkjunum og víðar.
Ævisaga Lindu, Linda – ljós og skuggar, kom út árið 2002.

Ókeypis örnámskeið
Horfðu strax á örnámskeiðið:
Af hverju gerirðu ekki það sem þú veist að þú átt að gera?
Já takk, ég vil skrá mig á gestalistann„LMLP hefur haft miklu meiri áhrif á mig en mig óraði fyrir. Ég hef styrkt sjálfsmynd mína og lært að standa betur með sjálfri mér og draumum mínum. Í dag þori ég miklu meira. Ég leyfi mér að sjást, taka pláss og byggja upp það sem skiptir mig máli.“
Arnrún María Magnúsdóttir · LMLP prógrammið