Terms of service

Skilmálar

Almennt
LMLP slf. áskilur sér rétt til að fella úr gildi, án fyrirvara, pantanir vegna mistaka við verðskráningu og ef vara eða þjónusta er tekin úr sölu.
Kaupandi skuldbindur sig til að greiða vöru og þjónustu að fullu við kaup. Komi til greiðslufalls áskilur LMLP slf. og Linda Pétursdóttir sér rétt til þess að sækja greiðsluna með lögboðnum leiðum.

Afhending vöru/þjónustu
Aðgangur opnast samdægurs svo framarlega sem opið er fyrir nýskráningar. Ef ekki, þá opnast aðgangur kaupanda samkvæmt dagsetningu á heimasíðu við kaup.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vefprógrömm eru aldrei endurgreidd.

Trúnaður seljanda
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Trúnaður kaupanda
Öll gögn og efni LMLP prógrammsins eru eign félagsins LMLP slf. og Lindu Pétursdóttur. Allt efni er eingöngu fyrir persónulega notkun kaupanda. Það er með öllu óheimilt að deila efni sem kaupandi fær aðgang að, hvort sem um ræðir að hluta til eða í heild. Eignarréttur kemur skýrt fram á öllum skjölum sem kaupandi hefur aðgang að í prógramminu og fylgja reglur eignarréttar samkvæmt því. Ef kaupandi brýtur á eignarrétti flokkast slíkt brot undir þjófnað og viðkomandi afsalar með því rétti sínum í LMLP prógramminu og verður meinaður frekari aðgangur og þátttaka. Engu að síður er kaupandi bundinn til að greiða fyrir þjónustuna að fullu.

Allur réttur áskilinn
Ekki má dreifa efni þessu með neinum hætti nema með skriflegu leyfi höfundar.

 

LMLP slf. kt. 600121-1030.
Sjávargata 34
225 Álftanes
Iceland
Email: skrifstofa@lindape.com - www.lindape.com