1 min read
Leyfirðu fólki að vera eins og það er?
Sambönd okkar við annað fólk eru eitt það mikilvægasta í lífi okkar. Allar eigum við í allskyns samböndum: Samband við maka, foreldra, börn, vinnufélaga, vini, ömmur og afa, fólk úr samfélaginu okkar o.s.frv. Þessi sambönd eru misjöfn eins og þau eru mörg og sum teljum við góð sambönd á meðan önnur myndu flokkast sem slæm sambönd.
Það er mikilvægt að hlúa vel að sambandi okkar við annað fólk - og lífsþjálfun gengur m.a. út á það að skoða sambönd okkar við aðra. Sambönd okkar við annað fólk eru fyrst og fremst hugsanir okkar um aðra manneskju og okkur sjálfar. Ég veit að þetta kann að hljóma mjög einfaldað en þetta er samt satt.
Sambönd okkar við annað fólk eru hugsanir okkar um þau. Hvernig myndi líf þitt líta út ef þú stjórnaðir hugsunum þínum og leyfðir öðru fólki að vera eins og það er? Okkur er nefnilega ekki ætlað að breyta öðru fólki. Þetta getur verið heilmikið að meðtaka, sérstaklega ef við höfum eytt mikilli orku í að stjórna öðru fólki til að okkur líði vel. Annað fólk getur ekki látið okkur líða vel. Vellíðan okkar kemur innan frá og er afleiðing hugsana okkar.
Í LMLP prógramminu tek ég fyrir sambönd okkar við annað fólk og okkur sjálf. Nú er lokað fyrir skráningar en ef þú vilt vera látin vita næst þegar það opnar, skráðu þig þá endilega á biðlista með því að smella hér.
Skráðu þig og fáðu Magasínið með Lindu Pé sent ókeypis á netfangið þitt á sunnudögum. Linda deilir með þér uppáhalds efninu sínu tengdu lífstíl, heilsu, fegurð, ferðalögum o.fl