MASTERCLASS: NÝIR MÖGULEIKAR

Endurskapaðu þig og opnaðu á nýja möguleika

SMELLTU HÉR TIL AÐ PANTA

1 mínútna lesning

Sumarfríið mitt er að klárast. Ég sit hér á Spáni með kaffibollann snemma á sunnudagsmorgni og finn að ég er farin að hlakka til að snúa aftur til vinnu og í daglegu rútínuna mína. 

Síðustu daga og vikur hef ég leyft mér að slaka á; sofið út, lesið bækur, legið á ströndinni, tekið siestu að spænskum sið um miðjan dag (mæli með því!) og einfaldlega einbeitt mér að því að hvíla hug og líkama.

Þegar ég hægi á og kúpla mig aðeins út, fer sköpunin á fullt. Ég kem til baka með ferska og uppfærða sýn, bæði fyrir fyrirtækið mitt og sjálfa mig. Slökun er ekki bara góð – hún er nauðsynleg.

  • Þegar ég hægi á, eykst rými fyrir sköpun.
  • Þegar ég sleppi tökunum, slaka ég á.
  • Þegar ég stíg til hliðar, sé ég hlutina í nýju ljósi.


Nú þegar farið er að líða á sumarið og margir finna fyrir tilhlökkun og nýrri orku – vil ég bjóða þér að staldra aðeins við og spyrja:
 

Hvaða jákvæðu hugsun vil ég taka með mér úr sumrinu?

Með hvaða orku ætla ég að stíga inn í haustið?