1 min read
Það getur verið gaman að bjóða vinkonum í „búst-bröns“ á fallegum sumardegi, setja upp lítið hlaðborð með mismunandi þurrkuðum og ferskum ávöxtum, hnetum og fræjum. Hella síðan bústblöndu í skálar og hver og ein gerir sína skál og fær svo engifer eða túrmeric-skot með. Prófaðu þessa skál.
Innihald
1 glas rauðrófusafi
2-3 appelsínur
1 sítróna
frosin bláber
Aðferð
Settu öll hráefnin saman í blandara og blandaðu vel saman. Helltu í skálar og settu ávexti, hnetur, fræ eða hvað sem þér dettur í hug ofan á til að gera skálina girnilega og fallega. Leyfðu sköpunargleðinni taka völdin. Magnið af innihaldsefninu fer eftir smekk, prófaðu þig áfram með hvað þér finnst best.
Skráðu þig og fáðu Magasínið með Lindu Pé sent ókeypis á netfangið þitt á sunnudögum. Linda deilir með þér uppáhalds efninu sínu tengdu lífstíl, heilsu, fegurð, ferðalögum o.fl