MASTERCLASS: NÝIR MÖGULEIKAR

Endurskapaðu þig og opnaðu á nýja möguleika

SMELLTU HÉR TIL AÐ PANTA

2 mínútna lesning

Við tölum oft um ríkidæmi eins og það snúist eingöngu um peninga. En hvers virði er fjárhagslegt ríkidæmi ef þú hefur engan tíma til að njóta þess? Ef þú átt næga peninga en enga orku? Ef þú hefur allt nema dýrmæt sambönd?

Að vera raunverulega rík snýst um meira en fjárhagslegan auð. Ríkidæmi er ekki bara mælt í peningum, heldur í því hvernig þú upplifir lífið – í tímanum sem þú hefur, heilsunni, tengslum við fólkið þitt og vexti og þroska.

Í nýlegri bók Sahil Bloom, The 5 Types of Wealth, er ríkidæmi brotið niður í fimm þætti sem saman mynda grunninn að lífi sem er ekki aðeins efnahagslega traust, heldur líka líf sem þú nýtur á marga vegu.

Fimm grundvallarþættir ríkidæmis

💰 Fjárhagslegt sjálfstæði – Getan til að lifa án fjárhagslegra áhyggja. Ekki bara að þéna meira, heldur að stjórna peningunum þannig að þeir styðji líf þitt.

⏳ Tímafrelsi – Að hafa stjórn á eigin dagskrá, geta sagt „já“ við því sem skiptir máli og „nei“ við því sem tekur frá þér orku og lífsgæði.

💪 Heilsa – Líkamleg og andleg vellíðan sem gefur þér styrk og orku til að lifa lífinu til fulls.

❤️ Sambönd – Traust og dýrmæt tengsl við fólk sem styður þig, elskar þig og gefur lífi þínu dýpt og tilgang.

🧠 Vitsmunalegur þroski – Að vera sífellt að læra, vaxa og víkka sjóndeildarhringinn. Að ögra sjálfri þér og halda huganum við.
 

Hvaða ríkidæmi skiptir þig mestu máli?

Það  forgangsraða ekki allir ríkidæmi á sama hátt – og það er í góðu lagi. Það sem skiptir máli er að þú takir meðvitaða ákvörðun um hvaða tegund ríkidæmis þú vilt efla í þínu lífi.

Ríkidæmi er ekki bara mælt í peningum.
Það er mælt í lífsgæðum, frelsi og því hvernig þú velur að lifa.