MASTERCLASS: NÝIR MÖGULEIKAR
Endurskapaðu þig og opnaðu á nýja möguleika
1 mínútna lesning
Zimmerma
Þegar ég skrifa þetta er ég stödd í einni af mínum uppáhalds borgum, London og ég elska að versla hér. Ég stóðst ekki mátið og bætti nýjum kjól í safnið frá Zimmermann, sem er merki sem ég er mjög hrifin af. Það sem heillar mig sérstaklega við Zimmermann er að hönnunin sameinar kvenleika, léttleika og tímalausan lúxus.
Fatnaðurinn þeirra er úr vönduðum, loftkenndum efnum þar sem hugsað er fyirir hverju smáatriði í hönnuninni eins og blúndum, mynstrum og mjúkum litum. Konur sem versla Zimmermann velja sér föt sem endurspegla sjálfsöryggi, afslappaðan elegans og sterka sjálfsvitund.
Nýi kjóllinn minn, sem ég klæðist á myndinni hér að ofan sem fylgir Magasíninu í dag, fangar nákvæmlega þetta: Ég upplifi mig sterka, kvenlega og tilbúin fyrir hvaða tilefni sem er.
Ef þú hefur ekki enn uppgötvað Zimmermann, mæli ég innilega með að þú skoðir þetta dásamlega merki.