102. Fjármál og farsæla konan
Peningar skipa stóran sess í lífi okkar allra en samt er eins og það sé einhvers konar tabú að tala um þá. Þetta finnst mér sérstaklega þetta eiga við um konur. Það virðist oft minna gagnrýnt og eðlilegra að karlar ræði um peninga og fjárhaglega stöðu en þegar konur tala um eigin fjárhag og skoðanir á peningum. Þessu viðhorfi þarf að breyta - og ég vil leggja mitt af mörkum. Við eigum allar einhvers konar samband við peninga og - eins og ég kenni á námskeiðum mínum - skapa hugsanir okkar veruleikann sem við lifum.
Í þessum þætti útskýri ég hvers vegna það skiptir svona miklu máli hvernig þú hugsar um peninga og hvernig þú upplifir tengsl þín við peninga. Ef þú ert ekki ánægð með fjárhagslega stöðu þína, og langar til í að breyta henni, er þetta einmitt þátturinn til að hlusta á.
Hvernig myndi þér líða ef sjálfsmynd þín væri sterk, aukakílóin væru horfin og þú værir að lifa draumalífinu þínu? Smelltu hér.
Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
P.s.
Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.