Í dag ætla ég að tala um mjög kröftugt hugtak sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu sem kallast lágmarksviðmið. Þegar við ætlum að gera breytingar í lífinu okkar, hverjar sem þær eru, kemur frumheilinn okkar til með að mótmæla. Þessi hluti heilans er þannig hannaður að hann vill aldrei gera breytingar. Markmið hans er að halda okkur á lífi og hann trúir því að ástæða þess að við séum á lífi í dag sé vegna alls þess sem við höfum gert hingað til.
Frumheilinn gerir engan greinarmun á því hvort við séum að lifa lífi sem er uppfullt af neikvæðum tilfinningum og slæmum lífstíl eða draumalífinu okkar. Og honum er í raun sama. Hann vill bara að við séum á lífi og ef við erum það í dag, hlýtur það sem við gerðum í gær að vera lykillinn að því. Lágmarksviðmiðið snýst um að læra að gera það sem við ætlum okkur að gera.
Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
P.s.
Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.