„Framtíðin ræðst af því sem þú gerir í dag“ - Mahatma Ghandi
Eitt af því mikilvægasta sem ég kenni í LMLP prógramminu mínu er að við látum fortíðina ekki spá fyrir um framtíðina. Við látum mistök fortíðar ekki spá fyrir um hvernig okkur á eftir að vegna í framtíðinni. Við erum alltaf bara einni ákvörðun frá því að breyta lífi okkar og þá ákvörðun er hægt að taka í dag. Dagurinn í dag er sá dagur sem skiptir máli, ekki gærdagurinn.
Markmið eru mjög mikilvæg fyrir framtíð okkar af því að þau gera okkur kleift að hanna okkar eigið líf. Markmiðasetning setur okkur í stellingar sem við þurfum að fara í til að spyrja okkur kröftugra spurninga og plana fram í tímann.
Þetta er upptaka af beinni útsendingu í Facebookgrúppuni Taktu skrefið.