Þegar ég byrjaði með LMLP prógrammið átti ég mér draum. Ég átti mér draum um að prógrammið mitt yrði kröftugt samfélag dásamlegra kvenna sem myndu hvetja og styðja við hverja aðra, á meðan þær uppgötvuðu sinn innri kraft undir minni leiðsögn. Ég sá fyrir mér byltingu sterkra kvenna úr öllum áttum og á öllum aldri sem sameinuðust í því að sætta sig ekki við hlutina heldur hanna lífið sitt meðvitað og vísvitandi. Og nú finnst mér draumur minn hafa ræst.
LMLP prógrammið stækkaði mjög mikið í janúar og mér þykir svo mikið til koma hvernig konurnar mínar sem fyrir voru í prógramminu opnuðu faðminn fyrir þeim nýju sem komu inn. Og það er krafturinn sem felst í þessu samfélagi. Við þurfum ekki að vera einar. Sameinaðar stöndum við svo miklu sterkari. Í LMLP erum við að fagna hver annarri þegar vel gengur og erum til staðar þegar á móti blæs. Þannig byggjum við okkur upp í samfélaginu okkar þar sem ríkir kærleikur, virðing og traust.
Mig langar að nota tækifærið og þakka yndislegu konunum mínum sem hafa verið með mér á þessari vegferð, sumar hverjar frá upphafi, á sama tíma og ég býð byrjendur hjartanlega velkomna. Þessi þáttur er tileinkaður öllum þessum mögnuðu konum.
LOKAÐ ER FYRIR SKRÁNINGU-BIÐLISTI
Aðgangsglugginn í LMLP prógrammið er nú lokaður.
Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst.
Skrá mig á BIÐLISTA