Vigtin og spegillinn eru verkfæri til að vinna í sambandi þínu við sjálfa þig. Að horfa í spegil og að stíga á vigtina eru leiðir til þess að vinna í sambandinu sem þú átt við þig í dag. Vigtin leiðbeinir þér á þyngdartapsferðalagi þínu. Ekki til láta þér líða illa þegar þú stígur á vigtina - hún hefur ekki vald yfir líðan þinni. Það eru alltaf hugsanir þínar um vigtina sem gera það. Þyngdin þín er ekki eitthvað til að skammast sín fyrir. Þú ert fullkomin og verðug nákvæmlega eins og þú ert í dag.
Þáttur dagsins er upptaka frá eldri vinnustofu LMLP prógrammsins, en ég birti hana hér aftur því þessi skilaboð eru svo mikilvæg.