130. Tilfinningar og velgengni í viðskiptum

Fyrir stuttu var ég beðin um að halda fyrirlestur í Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Það var mikill heiður að fá þetta tækifæri til að segja söguna mína úr viðskiptaheiminum. Ég hef upplifað mikla velgengni í viðskiptum, misst allt og staðið upp sterkari sem aldrei fyrr.

Ég talaði við stóran hóp af viðskiptafræðinemum um þetta ferðalag mitt og talaði sérstaklega um það hvernig tilfinningar og hugsanir okkar eru drifkrafturinn á bak við allt sem við gerum. Í mastersnáminu mínu í lífsþjálfun átti ég samtal við kennarann minn þar sem ég sagði henni að ég gæti ekki hugsað mér að upplifa það aftur að öllu öryggi væri kippt undan fótum mér. Hún svaraði: Linda þú ert þitt eigið öryggi. Við það sá ég líf mitt í nýju ljósi. Það getur enginn tekið öryggið frá mér, því öryggi er tilfinning sem ég upplifi. Ég áttaði mig á því að með hugsunum mínum bý ég til mitt eigið öryggi - og þá getur ekkert stöðvað mig! Síðan ég uppgötvaði þetta hefur fyrirtækið mitt margfaldast í stærð og tekjum.

Í þessum podcast þætti segi ég sögu mína og vona að hún verði þeim sem hlusta innblástur fyrir framtíðina.

 

Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
➡️➡️➡️ INSTAGRAM
➡️➡️➡️ FACEBOOK
➡️➡️➡️ HEIMASÍÐA


✔️✔️NÁMSKEIÐ
✔️✔️VÖRUR
✔️✔️MAGASÍNIÐ M/LINDU PÉ (ókeypis)

P.s. Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.