144. Á persónulegum nótum (Þáttur 2 af 2)
Þetta er seinni hluti þáttarins „Á persónulegum nótum“ þar sem Linda situr fyrir svörum en þátturinn var tekinn upp nýverið inn á Óstöðvandi námskeiðinu sem hún bauð uppá nýverið. Ef þú hefur ekki hlustað á þátt nr. 143, á undan þessum, skaltu endilega gera það fyrst og koma svo og hlusta á þennan sem er síðari hlutinn. Spurningarnar sem konurnar spurðu hana voru allskonar og hún svaraði þeim berskjölduð og einlæg eins og við má búast frá henni. Allt frá ástinni, morgunrútínu, gjaldþroti, förðun, ferðalögum, atvinnurekstri, að vera einstæð móðir og margt fleira. Þetta er þáttur 2 af 2 þar sem Linda svarar á persónlegum nótum.
Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum.
P.s.
Ég yrði afar þakklát ef þú tækir þér mínútu til að gefa podcastinu 5 stjörnu meðmæli á ITunes/Apple Podcast. Með því fá fleiri að hlusta á efnið sem ég set hér fram. Fyrirfram þakkir! Smelltu hér til þess.