Viðskipta Mastermind er 8 vikna námskeið með leiðsögn fyrir þá sem vilja fara frá hugmynd yfir í framkvæmd og byggja upp fyrirtæki á netinu. Unnið er markvisst með vöru/þjónustu, draumaviðskiptavin, skilaboð, sýnileika, markaðssetningu og sölu, svo hægt sé að leggja traustan grunn að netfyrirtæki- og skapa tekjur.
Þátttakendur fá vikulegan fund (mastermind) sem er sambland af verklegri vinnustofu, spurningum og svörum, ásamt dýrmætri endurgjöf í rauntíma frá Lindu á það sem unnið er með hverju sinni. Tímar eru á miðvikudögum frá 13.00-14.00, á eftirfarandi dagsetningum:
8., 15. og 22. apríl
13., 20. og 27. maí
3. og 10. júní
Þú færð ársaðgang að mastermind efninuog getur því horft á eftir á, og farið reglulega yfir efnið.
Ef þú vilt auka tekjurnar og fá leiðsögn frá Lindu við að byggja upp fyrirtæki á netinu, þá er Viðskipta Mastermind næsta skrefið fyrir þig.
Hefst 8. apríl 2026.